Vestmannaeyjar Gosið 73
Heimaey varð miðja alheimsins aðfararnótt 23. janúar 1973 þegar gos hófst í Helgafelli og 2 km löng sprunga opnaðist eftir endilangri eyjunni. Í höfninni lá fiskiskipaflotinn og á mettíma tókst að flytja flesta íbúa upp á land.
Dugnaður og hugvitssemi
Bjartsýni og æðruleysi Eyjamanna kom hvað gleggst í ljós þegar nokkrir vaskir menn ákváðu að verða eftir, berjast við móður náttúru og bjarga eigum sínum og framtíð bæjarins með því að sprauta vatni á hraunið.
Minning um náttúruöflin
Ótrúlegar minjar, sem hvergi eiga sína líka í heiminum, sýna aðkomumönnum hvernig hraunið braut undir sig stóran hluta af bænum. Húsabrot standa hér og hvar uppúr úfnu hrauninu, það er enn hiti í Eldfelli, og útsýnið frá toppi þess er stórkostlegt. Heimamenn hafa nú hafist handa við að grafa upp eina götu bæjarins, sem liggur undir ösku. Þar mun verða í framtíðinni minjasafn um þessa ótrúlegu daga. 
Ógleymanleg sigling
Sigling um Eyjarnar býður uppá ótrúlega stund, en þar má skoða kvínna, þar sem Keiko dvaldi meðan hann var gestur hér, Klettshelli, þar sem undrafagur hljómburður er og ef vel liggur á skipstjóranum mundar hann hljóðfæri sitt og leyfir gestum að heyra.
Eggjataka og lundaveiði.
Í Eyjunum má sjá litil hús híma út á brúnum bjarganna, en þar hafast bjargveiðimenn við á meðan þeir stunda eggjatöku og lundaveiði. Snarhnípt björgin með litskrúðugu fuglalífi , eru heimkynni lundans sem er einkennisfugl Vestmannaeyjanna.
Bragðað á náttúruafurðum
Að lokinni siglingu má svo fara reyna sig í þjóðarsporti Eyjamanna sem er að spranga á snarbröttum klettaveggjum, og fara svo inn á veitingahús og fá sér kvöldverð að hætti heimamanna- því enginn kann betur að matreiða lundann en Eyjamaðurinn.
Verðlisti 2007
| Vor og haust: | 16,910 |
| Sumar: | 18,760 |
| Börn: | 50% af ofangreindu |
| Ungabörn: | 10% af ofangreindu |
Innifalið: | Flug, Reykjavík - Vestmannaeyjar - Reykjavík Rútuferð, með leiðsögumanni |
Ekki innifalið: | Flugvallarskattur og tryggingargjald 1.860 kr. á mann Hádegismatur |
| Vetur: | 2. janúar - 24. mars og 28. október - 31. desember |
| Vor og haust: | 25. mars - 14. júní og 21. ágúst - 27. oktbóber |
| Sumar: | 15. júní - 20. ágúst |