Golfklúbbur Vestmannaeyja

  Golfklúbbur Vestmannaeyja (GV) er þriðji elsti golfklúbbur á Íslandi, stofnaður 4. desember 1938 og voru stofnendur 36 talsins.  Fyrsta svæði klúbbsins var í Herjólfsdal og var þar komið upp 6 holu velli strax á fyrsta ári klúbbsins.  Strax árið á eftir var lokið við byggingu lítils skála í austurhluta dalsins.  Þrjár af fyrstu holunum eru ennþá í notkun á þeim velli sem er notaður í dag, þ.e. 6. holan (upphaflega 1. holan), 7. holan, Kaplagjóta (upphaflega 2. hola) og 8. holan, Fjósaklettur (upphaflega 3. holan).  Eru þetta langelstu golfholur landsins í dag.  Völlurinn tók ýmsum breytingum í gegnum árin en varð fyrst 9 holur árið 1962.

Þjóðhátíðarhald og notkun almennings af Herjólfsdal varð til þess að félagar námu nýtt land suður af dalnum og í framhaldi af því var ráðist í byggingu nýs skála talsvert sunnar.  Skáli klúbbsins hefur tekið miklum breytingum í gegnum árin, sérstaklega árið 1981 og 2001 er hann var stækkaður og í dag hefur klúbburinn yfir að ráða glæsilegum golfskála sem getur tekið um 200 manns í matarveislu, með skrifstofuaðstöðu, setustofur, golfhermisherbergi o.fl.  Eldgosið 1973 setti talsvert strik í reikninginn bæði hvað varðaði byggingu skálans og golfiðkun almennt þar sem þykkt lag af vikri huldi völlinn.  Þá var tekinn í notkun til bráðabirgða sex holu völlur suður á eyju við Sæfjall og var hann í notkun til 1977 þegar klúbbfélagar höfðu lokið við hreinsun á gamla vellinum við Herjólfsdal.

Löngu fyrir gos voru uppi raddir um að stækka völlinn í 18 holur.  Sá draumur varð að veruleika árið 1994.  Gamli völlurinn var þá látinn halda sér í sem næst óbreyttri mynd en bætt var við níu holum á svæði sem liggur að verulegu leyti við Hamarinn meðfram sjó.  Hönnun vallarins þykir einkar vel heppnuð, stórbrotið landslag nýtur sín vel og völlurinn fellur vel inn í umhverfið, fuglalíf setur einnig sterkan svip á völlinn, bæði sjófugl og mófuglar.  Sums staðar er útsýnið slíkt á teigum að menn hreinlega gleyma golfleiknum og setjast niður og slaka á. 

Hið þekkta golftímarit Golf Monthly valdi golfvöllinn í Vestmannaeyjum einn af 200 bestu völlum í Evrópu og hefur völlurinn hlotið lof erlendra  blaðamanna og golfara.  Völlurinn hefur verið valinn til að halda ýmsa stóra golfviðburði í gegnum árin, m.a. var þar haldið Norðurlandamót í golfi árið 2000 og árin 1964, 1996 og 2003 voru haldin landsmót, í dag Íslandsmót í höggleik, á vellinum í Eyjum og á 70 ára afmælisári, árið 2008 er fyrirhugað að þar verði Íslandsmót í höggleik.

Hið milda strandloftslag í Vestmannaeyjum gerir það að verkum að unnt er að spila á vellinum nær allan ársins hring og að vori tekur hann mun fyrr við sér en flestir aðrir vellir landsins.  Hafa komið ár þar sem allt árið er spilað á sumarflötum á fyrri níu holum vallarins.

Hér er hægt að sjá teikningar af vellinum

Fyrir frekari upplýsingar: www.gvgolf.is eða á GolfinIceland.net