Vissir þú

Að 18 holu golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er talinn vera einn af 200 bestu golfvöllum í Evrópu.

Goslokahátíð 

Fyrstu helgina í júlí halda Eyjamenn hátíð.  Þá eru þeir að minnast goslokanna þann 3. júlí 1973, en Heimaeyjargosið byrjaði þann 23. janúar sama ár. Goslokahátíðin er haldinn árlege en fimmta hvert ár er sérstakt afmælisár og er þá haldið veglega upp á þessi tímamót. Fyrirtæki og félög hafa einnig tekið þátt í þessari dagskrá og ber þar helst að nefna:

VOLCANO OPEN

Golfklúbbur Vestmannaeyja og Icelandair standa að þessu móti. Hér er um 2ja daga alþjóðlegt golfmót að ræða, og er erlendum golfspilurum að fjölga með hverju árinu.  Það byrjar seinni part föstudags þar sem spilurum er boðið upp á súpu áður en byrjað er spila, en það er byrjað jafnt á öllum teigum. Um kvöldið að loknum leik er boðið upp á "miðnætursnarl", lunda, flatkökur og tilheyrandi.

Seinni daginn er byrjað að spila rétt fyrir hádegi.  Að loknu móti er síðan haldið Lokahóf, með veglegri dagskrá.  Boðið er upp á sjávarréttahlaðborð sem á sér engan líka.   Verðlaunaafhending, söngur og gamansemi er einnig í hávegum höfð.  Upp úr miðnætti halda síðan allir niður í Skvísusund, þar sem goslokahátíðin fer fram.

SPARISJÓÐSDAGURINN

Sparisjóður Vestmannaeyja, heldur sinn árlega sparisjóðsdag á laugardeginum. Boðið er upp á grillaðar pylsur með tilheyrandi, söngatriði, hoppukastala eða sambærileg leiktæki, keppni í hlaupi, körfu- hand- eða fótboltaþrautir, Götuleikhús og svona mætti lengi telja.

GOSLOKAHÁTÍÐIN

Á föstudeginum hefur verið boðið upp á siglingar upmhverfis Surtsey,  ásamt því að menningartengd dagskrá / eða sýningar eru á föstudagskvöldinu.  Eftir hádegi á laugardegi býðst fólki að ganga á Heimaklett sem er hæsta fjall Heimaeyjar,undir leiðsögn kunnugra manna.

Um kvöldið er boðið upp á dagskrá í Skvísusundi. Þar koma rithöfundar og lesa upp úr bókum sínu. Einnig er boðið upp á barnadagskrá og tónlistaratriði. Þessu lýkur kl. 23.00 og þá gert klukkutíma hlé, til þess að fullorðna fólkið geti komið börnum heim.

Upp úr miðnætti byrjar síðan fjörið í Skvísusundi.  Í Skvísusundi er margar gamlar "fiskikrær" þar sem heimamenn hafa skipt liði og spila og syngja langt fram eftir nóttu. Ekki má gleyma þátttöku hins almenna Eyjamanns en reikna má með að 20-30 heimamenn komi með gítarinn sinn eða harmonikuna og spili fyrir þá sem ekki komast í hús, en mikil þátttaka er í þessum hátíðarhöldum.  Mikið af gestum þ.m.t. gömlum eyjamönnum koma árlega til Eyja til þess að samfagna goslokum.

Á sunnudeginum er síðan haldin göngumessa.  Hún hefst með göngu frá Landakirkju þar sem gengið (eða farið með rútu) að gíg Eldfells og hefst þar hefðbundin athöfn.  Að lokum er farið niður á Skans þar sem messunni lýkur í Stafkirkjunni.  Eftir það býður sóknarnefnd Landakirkju gestum upp á heita súpu og brauð.