Hótel Þórshamar

 
 

 

Hótel Þórshamar er þriggja stjörnu hótel staðsett í hjarta Vestmannaeyjabæjar. Í öllum herbergjum er sjónvarp með 12 rásum ásamt myndbandstæki og útvarpi, sími, minibar, baðherbergi með sturtu og fimm stjörnu hótelrúm. Morgunverður er framreiddur á veitingastaðnum á fyrstu hæð hótelsins. Á hótelinu er þráðlaus nettenging. Fjöldi herbergja er 21. Nýlega voru teknar í notkun þrjár svítur þar sem tilvalið er að gista ef maður vill láta fara sérstaklega vel um sig í þægilegu umhverfi.

Í kjallara Hótel Þórshamars er frábær afslöppunaraðstaða með heitum pottum og gufubaði fyrir þá sem vilja slappa af og hlaða batteríin eftir eril dagsins. Þar er að finna vinalega setustofu ásamt fullbúnu snóker herbergi. Það er fátt þægilegra en að láta þreytu dagsins líða úr sér í gufubaðinu og skella sér síðan í heitan nuddpott af bestu gerð. Frábært fyrir minni hópa sem vilja gera sér dagamun

Hótel Þórshamar rekur að auki þrjú gistiheimili þar sem boðið er upp á þægilega gistingu á hagstæðu verði.



21 Herbergi - Gistipláss fyrir 41 - TV - Heiturpottur
Morgunmatur - Internet

Hótel Þórshamar
Vestmannabraut 28
900 Vestmannaeyjar
Iceland
Tel. +354-481-2900
Fax:+354-481-1696
 Email:thorshamar@simnet.is
Miðbær:0 m
Sundlaug:1000m
Golfvöllur:1800m
Íþróttasvæði: 1000m
Flugvöllur:3000m
Herjólfur: 700m