Icelandair

Icelandair er ferða- og flugþjónustufyrirtæki sem veitir gæðaþjónustu. Icelandair flýgur til 23 áfangastaða í Bandaríkjunum og Evrópu og býður þar fjölbreytta þjónustu á viðráðanlegu verði. Skoðið leiðakerfið til að sjá tæmandi upptalningu á áfangastöðum okkar.

Icelandair er hluti af Icelandair Group.

Icelandair er alþjóðlegt flugfélag og stærsta fyrirtækið innan Icelandair Group. Icelandair heldur úti sínu eigin leiðakerfi auk þess að sjá um flugþjónustu fyrir systurfélögin Loftleiðir og Icelandair Cargo. Icelandair starfrækir einnig verslunina Saga Boutique um borð í flugvélum sínum og síðast en ekki síst rekur það Vildarklúbb Icelandair til að styrkja tengslin við viðskiptavini sína.

Stefnuyfirlýsing Icelandair
Icelandair er alþjóðlegt þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum gæðaþjónustu.

http://www.icelandair.is/