Lundapysjur

Líklega er vandfundinn göfugri íþrótt en sú sem ungmenni í Vestmannaeyjum stunda í ágústmánuði. Þá fer pysjan á kreik, en svo er ungi lundans ævinlega nefndur í Eyjum. Foreldrar hennar hafa hætt matargjöf nokkru áður og svengdin rekur hana úr holu sinni.
En ljósin í kaupstaðnum freista og hundruðum saman fljúga þær veikum vængjum á vit ljósanna í kaupstaðnum. Þá kemur í ljós að fleirum en mannfólkinu hefur orðið hált á að glepjast af ljósadýrð og glysi borgarlífsins, því það sem mætir pysjunni við lendingu eru harðar götur og gangstéttir ellegar dimmir húsagarðar.
Og stundum eru kettir á sveimi í vígahug. En pysjurnar eiga sér bandamenn í þessum malbiksfrumskógi. Hvarvetna eru hjálpfúsar hendur barna sem hafa það fyrir stafni að kvöldlagi í ágúst að fara um bæinn með pappakassa og safna saman þeim pysjum sem villst hafa af réttri leið. Ekki er óalgeng

t að afrakstur kvöldsins hjá hverjum veiðimanni sé tíu pysjur eða meira.
Um nóttina fá pysjurnar gistingu í mannheimum en árla morguns eru krakkar á fótum því nú á "að sleppa". Þá er farið með kassann eitthvert þangað á eynni þar sem gott aðgengi er , svo sem inn á Eiði eða út á Hamar. Þegar þangað er komið eru pysjurnar teknar ein af annarri og þeim sveiflað styrkum höndum hátt á loft, þannig að þær grípa flugið á vit frelsisins úti á sjónum.
Lundapysjuveiðar/pysjuveiðar er góð skemmtun fyrir alla meðlimi fjölskyldunnar.