Smáhýsi Ofanleiti 

 






Í stærra húsinu eru 4 rúm, eldavél, ísskápur og snyrting með sturtu. Í því minna eru 3 rúm, eldunarhellur, ísskápur og snyrting. Sængur eru í báðum húsunum en sængurfatnað er hægt að leigja gegn hóflegu þvottagjaldi.

Ofanleiti er rétt fyrir ofan kaupstaðinn á Heimey. Þar er stundaður frístundarbúskapur, gæsir, endur, kanínur og ofl. Einnig er þar gamall og virðulegur köttur sem heitir Tóbías.

Vísir að tjaldstæði er á svæðinu með góðri snyrtingu. Nóg pláss er fyrir útileiki. Við leggjum áherslu á að börnunum líði vel hjá okkur og stillum verðinum í hóf.
Í byrjun febrúar setjum við egg til útungunar í vélar og hafa börn og fullorðnir mjög gaman af að skyggna og hlusta á þau en hægt er að tala við ungana í eggjunum rétt fyrir klakið.

Útsýnið er ægifagurt frá Ofanleiti.

 

 

 

 

Smáhýsi Ofanleiti
Ofanleiti box 344
900 Vestmannaeyjar
Iceland
Tel. +354- 481 1109 
Mobile: +354- 695 2309 
Email: ofanleiti@isl.is

Miðbær: 2000m 
Sundlaug: 1000m
Golfvöllur: 1500m
Íþróttasvæði:  1000m
Flugvöllur: 1500m
Herjólfur: 2000m