Þrettándinn

Það er ekki hægt að segja annað nema að þréttandinn sé eintóm gleði, þrátt fyrir það að það sé verið að kveðja jólin. Enda leggja eyjamenn sig einstaklega vel fram í að gera þetta að eftirminnilegu kvöldi.

Þrettándinn er sérstaklega sniðinn að fjölskyldum þar sem álfar, tröll og jólasveinar eru aðalnúmerin á þessu kvöldi. Hátíðin byrjar um kvöldmatarleytið þar sem þátttakendur safnast saman fyrir neðan fjall sem ber nafnið Háin og fylgjast með setningu hátíðarinnar með flottri flugeldasýningu, sem er fulkominn byrjun á frábæru kvöldi.

Eftir flugeldanna koma svo Jólasveinarnir 13 gangandi ásamt Grýlu og Leppalúða niður af fjallinu með kyndla/blys í hendinni þannig að þeir sjást úr langri fjarlægð. Þegar þeir koma niður af fjallinu tekur við skrúðganga upp að malarvellinum þar sem hátíðarhöldin fara fram. Skrúðgangan gefur öllum sem vilja, ungum sem öldnum tækifæri á því að spjalla við Jólasveinanna. Það er bæði spenna, gleði og jafnvel smá ótti sem skín í augum yngri kynslóðarinnar er þau ganga með þessum jólasveinum sem hafa verið duglegir að setja í skóinn þeirra 13 dögum fyrir jól.

Þegar á malarvellinn er komið er brennan tendruð og bæjarbúar og aðrir gestir dreifa sér í kringum afmarkað svæði þar sem öll tröllinn, Jólasveinarnir, Grýla, Leppalúði að ógleymdum álfum og púkum skemmta sér og öðrum á svæðinu. Stemmingin er ólýsanleg, jólalögin streyma úr hátalarakerfinu og ef þú ert heppinn þá gætirðu fengið að ganga hring með Jólasveinunum. Til þess að kóróna kvöldið er svaðaleg flugeldasýning rétt fyrir ofan malarvöllinn þar sem bæði flugeldatertur í bland við tívólibombur lita himininn í góðri blöndu við birtuna frá brennunni, þannig líkur kvöldinu á malarvellinum en kvöldið er langt frá því að vera búið fyrir þáttakendur þar sem vinsælt er að hittast í heimahúsi og fá sér heitt kakó eða eitthvað sterkara með því og skemmta sér í góðra vina hópi.

Þréttandinn er sannkölluð fjölskylduskemmtun sem svíkur engan, fyrir yngri kynslóðina sem eru að fara í fyrsta skipti er þetta ekki ólíkt því að fara í Disney World þar sem þau munu upplifa allskyns verur og fígúrur sem eru hver öðrum skrítnari og sum þeirra eru frekar ljót. En þetta er eitthvað sem enginn á að láta fram hjá sér fara, allaveganna upplifa þetta einu yfir ævina.