Í Vestmannaeyjum er öflug fiski flutningahöfn. Þetta er eina höfnin á svæðinu frá Hornarfirði til Þorlákshafnar. Vestmannaeyjar eru einn stærsti útgerðarbær landsins, en Eyjarnar liggja vel að mjög góðum fiskimiðum.
600 skip fara árlega um höfnina, fyrir utan umferð heimabáta. Þar er landað um 200 þús. tonnum af fiski. Skip upp í 150 metra lengd geta siglt inní Vestmannaeyjahöfn og snúið þar við.
Á vegum hafnarinnar er öll aðstaða til að ferja fólk af stærri skemmtiferðaskipum í lans sem og öll önnur þjónusta fyrir minni og stærri skip.