Vissir þú

Að Ásgeir Sigurvinsson fyrrverandi fyrirliði þýska stórveldisins Stuttgart og einn sá allrabesti Íslenski fótboltamaður sem sögur fara af er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum.

VikingTours: Bátaferðir


Sérhannaður ferðamannabátur byggður eftir ýtrustu kröfum ferðamannageirans og getið hefur sér gott orð á því sviði við Vestmannaeyjar. Báturinn er allur hinn glæsilegasti og tekur 50 farþega. Hann er búinn tveimur 360 hp vélum og ganghraði hans er um 22 mílur.

Ferðir í boði hjá Viking Tours:
Mikilvægt er að hafa í huga að allar ferðir eru háðar veðri.

Hringsigling:
Brottför: 10:30 & 15:30 pm

Tímaleng: um það bil 1,5 klst.

Farið er í siglingu í kringum Heimaey og víðar við Eyjar þar sem ferðamenn geta virt fyrir sér hina mörgu hella, fjölskrúðugt fuglalíf og hvali. Leiðsögumaður segir frá því sem fyrir auga ber á íslensku, ensku og þýsku. Ferðin endar á því að siglt er inn í Klettshelli og spilað fyrir farþega á hljóðfæri, þaðan er siglt í höfn á ný.

Verð fullorðnir kr. 3.400,- 9-14 ára kr. 2.400,- 0-8 ára frítt.
Verð þetta miðast við árið 2008

Surtseyjarferðir:
Brottför: Eftir pöntun

Á leiðinni til Surtseyjar, eldfjallaeyjunnar sem varð til 1963, hefur þú bestu möguleikanna að sumri til að sjá hvali. Við siglum hægt og rólega í kringum Surtsey og á leiðinni til baka færðu að sjá fleirra sem að Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða eins og lílfega fuglalífið, hella ofl.

Hvalaskoðun:                                        
Brottför: Eftir pöntun

Stórskemmtilegar hvalaskoðunarferðir þar sem möguleiki er á að sjá hahyrninga, steypireyð, hnúfubak, hrefnu, höfrunga, hnísu o.fl. tegundir. Stórhvalir eins og steypireyður koma upp undir strendur landsins snemma sumars í fæðuleit og dvelja hér fram á haust. Ferðirnar eru háðar fjölda ferðamanna og veðri.

Verð er háð fjölda og óskum ferðalanga

Sjóstöng:

Brottför: Eftir pöntun
 
Í Eyjum er örstutt á gjöful fiskimið og því tilvalið að skella sér í góðan veiðitúr á frábærum stangaveiðibát með hressum skipstjóra. Stangir og veiðifæri eru um borð.

Verð er háð fjölda og óskum ferðalanga

Hellaskoðunarferðir:

Brottför: Eftir pöntun

Farið í hina fjölmörgu sjávarhella sem eru í eyjaklasanum. Má þar nefna Kafhelli, Fjósin, Suðureyjarhelli og Klettshelli. Einnig er siglt undir Súlnasker.

Verð er háð fjölda og óskum ferðalanga

 


Dinner at sea:
Brottför: Eftir pöntun

Við bjóðum upp á matarveislur í samvinnu við Veisluþjónustu Einska Kalda. Þá er siglt inn í Klettselli og þar er boðið upp á glæsilegt hlaðborð við undirleik sjávarniðsins. Tilvalið fyrir þá sem vilja reyna eitthvað nýtt og spennandi.

Verð er háð fjölda og óskum ferðalanga

Hér eru allar þær þjónustur sem að Viking Tours hefur upp á að bjóða
Bátaferðir - Rútuferðir - Kaffi Kró

Fyrir meiri upplýsingar þá er hægt að ná í okkur í síma +354 488 4 884 Fax +354 488 4 888 eða með tölvupósti viking@vikingtours.is

Skoðaðu myndir úr bátsferð PH Viking hér