Vissir þú........

 
  • Að Vestmanneyjar er stærsta lunda nýlenda í heimi.
  • Að 18 holu golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er talinn vera einn af 200 bestu golfvöllum í Evrópu.
  • Að það búa um 4100 íbúar á Heimaey og er hún eina eyjan af 15 sem fólk býr á.
  • Að um 30 mismunandi gerðir fuglar verpa eggjum í Vestmannaeyjum
  • Að Eldfell er yngsta og jafnframt nýjasta eldfjall í heimi.
  • Að golfvöllurinn í Eyjum er talinn vera sá allrabesti á Íslandi og einn af best földu demöntunum í heimi golfsins.
  • Að Hermann Hreiðarsson fyrrverandi leikmaður Charlton Athletic og núverandi leikmaður Portsmouth er Eyjapeyji. Herminator eins og hann er kallaður í Englandi er einnig aktívur meðlimur Íslenska landsliðsins.
  • Að elsti lundi sem náðst hefur í Vestmannaeyjum var 38 ára.
  • Að Vestmannaeyjar samanstendur af 15 eyjum og 30 skerjum.
  • Að Surtsey er yngsta of jafnframt nýjasta eyjan í heiminum.
  • Að háhyrningurinn Keikó (Free Willy stjarnan) bjó í sérsmíðaðri kví staðsettri í Klettsvík í Vestmannaeyjum frá árinu 1998 til 2002.
  • Að vitavörður Vestmannaeyja Óskar J. Sigurðsson hefur merkt yfir 80.000 fugla sem er heimsmet.
  • Að um 10.000 manns koma árlega saman í Eyjum til að taka þátt í Þjóðhátíð, stærsta atburði Verslunarmannahelgarinnar.
  • Að um 10.000.000 lunda búa í Vestmannaeyjum.
  • Að Vestmannaeyjar eru sannkölluð Eldfjallaeyja (með 3 Eldfjöll). Fyrst ber að nefna Helgafell svo Surtsey og síðast en alls ekki síst Eldfell.
  • Að Ásgeir Sigurvinsson fyrrverandi fyrirliði þýska stórveldisins Stuttgart og einn sá allrabesti Íslenski fótboltamaður sem sögur fara af er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum.
  • Að Heimaeyjargosið stóð yfir í rúma 5 mánuði.
  • Að þegar Tyrkjaránið fræga stóð yfir 1627, földu yfir 100 Vestmanneyingar sig í helli til að forðast þess að vera rænt, sá hellir heitir í dag Hundraðmannahellir.
  • Að Óskar J. Sigursðsson vitavörður fékk verðlaun sem "Hetja umhverfisins 2007"
  • Að Vestmannaeyjar er eini staðurinn á Íslandi sem að Skrofa verpir eggjunum sínum.
  • Að Gunnar Heiðar Þorvaldsson núverandi leikmaður Þýska fótboltaliðsins Hannover er Eyjapeyji. Gunnar Heiðar er líka aktívur meðlimur Íslenska landsliðsins í fótbolta.
  • Að hæsta fjall í Eyjum er Heimaklettur sem er 283m hátt.
  • Að það er gata í Eyjum sem er nefnd eftir Danakonungi árið 1930 og er gatan kölluð Hilmisgata (Hilmir þýðir konungur)